Aston Villa fylgist með Mbaye - Coventry og Leeds berjast um Openda - Gordon á leið til Bayern - Vilja Trafford sem arftaka Martínez
   lau 02. maí 2026 22:12
Brynjar Ingi Erluson
Frakkland: Fyrsti byrjunarliðsleikur Pogba í þrjú ár - Lens missteig sig
Paul Pogba byrjaði í fyrsta sinn síðan í maí 2023
Paul Pogba byrjaði í fyrsta sinn síðan í maí 2023
Mynd: EPA
Franski miðjumaðurinn Paul Pogba byrjaði sinn fyrsta fótboltaleik í þrjú ár er Mónakó vann 2-1 útisigur á Metz í frönsku deildinni í dag.

Pogba hefur verið mikið frá síðustu þrjú ár. Hann fór í bann fyrir brot á lyfjareglum árið 2023 en sneri aftur á síðasta ári og samdi við Mónakó.

Hann hefur lítið spilað vegna meiðsla og var óvíst hvort hann gæti yfir höfuð haldið áfram að spila fótbolta. Mónakó hefur sýnt honum mikinn stuðning í endurhæfingunni og í dag kom loks fyrsti byrjunarliðsleikurinn.

Frakkinn lék tæpan klukkutíma áður en honum var skipt af velli en þá var staðan 1-0 fyrir Metz. Folarin Balogun og Ansu Fati náðu að snúa leiknum Mónakó í hag og koma liðinu upp í 6. sæti deildarinnar sem gefur þátttökurétt í Sambandsdeildina.

Lens fór illa að ráði sínu í titilbaráttunni er liðið gerði 1-1 jafntefli við Nice. Allan Saint-Maximin skoraði fyrir Lens á 60. mínútu en allt hrundi þegar Saud Abdulhamid fékk rauða spjaldið á 81. mínútu.

Ali Abdi jafnaði metin nokkrum mínútum síðar og er Lens nú sex stigum frá toppliði PSG.

Þetta var ágætis general-prufa hjá Nice og Lens, en liðin eigast við í úrslitum franska bikarsins síðar í þessum mánuði.

Metz 1 - 2 Monaco
1-0 Jessy Deminguet ('49 )
1-1 Folarin Balogun ('61 )
1-2 Ansu Fati ('90 )

Nice 1 - 1 Lens
0-1 Allan Saint-Maximin ('60 )
1-1 Ali Abdi ('84 )
Rautt spjald: Saud Abdulhamid, Lens ('81)


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner
banner