Paris Saint-Germain tók á móti Lorient í efstu deild franska boltans í dag og tefldi Luis Enrique fram varaliði til að hvíla lykilmenn fyrir undanúrslit Meistaradeildarinnar.
PSG heimsækir FC Bayern í Meistaradeildinni eftir ótrúlegan fyrri leik liðanna í París.
Bayern mætti til leiks fyrr í dag með varaliðið sitt og gerði óvænt jafntefli við botnlið Heidenheim og var sama uppi á teningnum hjá PSG.
PSG stjórnaði ferðinni gegn Lorient og náði forystunni fyrst í fyrri hálfleik og svo í þeim síðari en það dugði ekki til, lokatölur 2-2.
PSG er því með sjö stiga forystu í titilbaráttunni en Lens situr í öðru sæti og á leik til góða síðar i dag. Takist Lens að sigra í kvöld munu aðeins fjögur stig skilja liðin að með þrjá deildarleiki eftir óspilaða.
Nantes mætti Marseille fyrr í dag og vann 3-0. Það gengur herfilega illa hjá Marseille eftir að Roberto De Zerbi yfirgaf félagið og er liðið í alvarlegri hættu á að missa af evrópusæti.
PSG 2 - 2 Lorient
1-0 Ibrahim Mbaye ('6)
1-1 Paglo Pagis ('12)
2-1 Warren Zaire-Emery ('62)
2-2 Aiyegun Tosin ('78)
Nantes 3 - 0 Marseille
1-0 Ignatius Ganago ('50)
2-0 Remy Cabella ('54)
3-0 Matthis Abline ('58)



