Keflavík vann stórsigur, 8-2, á Tindastóli á Sauðárkróksvelli í dag í fyrsta leik liðanna á tímabilinu. Fyrirliðinn Anita Lind Daníelsdóttir var að vonum sátt með byrjunina.
„Bara geggjaðar. Það er fyrsti leikur og maður fann það alveg smá inn í klefa stress fyrir leik. Maður náttúrulega líka veit ekkert um Tindastólsliðið en þetta er geggjað að taka svona góðan sigur í fyrsta leik og hérna líka á Króknum.“
Lestu um leikinn: Tindastóll 2 - 8 Keflavík
Leikurinn var jafn í hálfleik, 1-1, en Keflavík tók öll völd í síðari hálfleik og skoraði sjö mörk. Anita segir breytingar í hálfleik hafa skipt máli.
„Við breyttum um kerfi fórum í fjögra manna vörn og bara breyttum öllu uppspili hjá okkur.“
Að hennar mati var það spilageta liðsins sem gerði gæfumuninn.
„Bara svona spilagetan mætti segja en þetta er hörkulið og þær létu alveg finna fyrir sér. Þær eru líka bara að púsla sér ennþá saman þannig ég held að það komi hjá þeim með tímanum.“
Keflavík er spáð í efri baráttuna í sumar en Anita segir liðið taka hlutunum rólega.
„Bara taka einn leik í einu og vinna hann. Það er bara okkar plan og við ætlum ekkert að fara eitthvað langt fram í tímann og spá í þessu. Einn leikur í einu og við ætlum að vinna þá alla.“
Hún segir hópinn sterkann og klárann þrátt fyrir smá meiðslavandræði.
„Allar komnar skilst mér en við erum með einn útlending í meiðslum þannig við vitum ekki alveg hvernig það kemur en annars erum við með góðan hóp og við náum vel saman og gengur vel.“























