Cecilía Rán Rúnarsdóttir hélt hreinu í níunda sinn á tímabilinu er Inter vann grannaslaginn gegn AC Milan, 1-0, í Seríu A á Ítalíu í dag.
Landsliðsmarkvörðurinn var langbesti markvörður ítölsku deildarinnar á síðasta tímabili og er að eiga mjög gott tímabil í ár.
Hún átti frábæran leik í markinu og náði í níunda hreina lakið í öllum keppnum á leiktíðinni.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var einnig í byrjunarliði Inter en var skipt af vell undir lok leiksins. Telma Ívarsdóttir sat allan tímann á varamannabekknum.
Inter er í öðru sæti deildarinnar með 43 stig, sex stigum frá toppliði Roma.
Birta Georgsdóttir var í fremstu víglínu hjá Genoa sem gerði markalaust jafntefli við Sassuolo. Genoa er í neðsta sæti með 10 stig.
Hildur Antonsdóttir lék allan leikinn hjá Madrid CFF í 3-0 tapi gegn DUX Logrono í Liga F deildinni á Spáni. Madrid er í 10. sæti með 31 stig.
Sædís Rún Heiðarsdóttir lagði upp sigurmark Vålerenga í 3-2 sigri liðsins á Lilleström í norsku úrvalsdeildinni. Vålerenga náði tveggja marka forystu en Lilleström kom til baka áður en Sædís lagði upp sigurmarkið fyrir Stine Brekken á 65. mínútu.
Arna Eiríksdóttir hafði komið inn á sem varamaður aðeins nokkrum mínútum áður. Vålerenga er í 2. sæti með 13 stig, eins og Brann, sem er á toppnum á markatölu.
Emilía Kiær Ásgeirsdóttir var í byrjunarliði Leipzig sem tapaði fyrir Wolfsburg, 3-2, í þýsku deildinni. Hún fór af velli undir lok leiks, en Leipzig er í 10. sæti með 27 stig.



