Það eru skemmtilegir leikir á dagskrá í dag þar sem stórveldin Frakkland og Spánn mæta bæði til leiks í vináttulandsleikjum í undirbúningi sínum fyrir heimsmeistaramótið.
Frakkar komust í úrslit á síðasta móti en töpuðu eftir vítaspyrnukeppni gegn Argentínu. Þeir spila við spennandi lið Fílabeinsstrandarinnar í kvöld, sem inniheldur þónokkra leikmenn sem eru fæddir í Frakklandi eða fluttu þangað sem börn. Í heildina telja þessir leikmenn 11 af 26 mönnum leikmannahópsins.
Frakkar eru í erfiðum riðli á HM ásamt Senegal, Írak og Noregi á meðan Fílabeinsströndin er einnig í erfiðuim riðli með Þýskalandi, Ekvador og Curacao.
Evrópumeistarar Spánar spila þá við Írak í kvöld og eiga lærlingar Graham Potter í landsliði Svía leik við Grikkland.
HM-fararnir frá Íran spila við Malí í Tyrklandi og að lokum eru vináttulandsleikir smærri þjóða á dagskrá, sem komust ekki í gegnum undankeppnina fyrir HM.
Vináttulandsleikir
11:00 Maldívur - Pakistan
12:00 Kambódía - Bútan
13:00 Lesótó - Kenía
15:30 Íran - Malí
16:00 Slóvenía - Kýpur
16:00 Búrúndí - Miðbaugs-Gínea
16:00 Norður-Írland - Gínea
17:00 Andorra - Liechtenstein
17:00 Svíþjóð - Grikkland
19:00 Spánn - Írak
19:10 Frakkland - Fílabeinsströndin
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!




