Florentino Pérez forseti Real Madrid er að undirbúa sig undir forsetakosningarnar sem fara fram um helgina.
Pérez mætir þar Enrique Riquelme sem hefur áhuga á að taka forsetastólinn.
Riquelme lofaði stuðningsmönnum því að hann myndi ráða inn topp þjálfara til Real Madrid, einhvern þjálfara sem „allir Madrídingar elska, ekki eins og Mourinho," sagði hann í gær.
Riquelme talaði einnig um að ætla að leggja allt púður í að krækja í tvíeykið öfluga Rodri og Erling Haaland úr röðum Manchester City í sumar.
Pérez hefur hins vegar látið verkin tala. Mourinho verður kynntur til leiks sem nýr þjálfari ef Pérez vinnur kosningarnar og þá eru Ibrahima Konaté og Denzel Dumfries á leið til félagsins úr röðum Liverpool og Inter.
Pérez var spurður út í framtíð Nico Paz, sem er algjör lykilmaður hjá Como og hefur verið einn af bestu leikmönnum ítölsku deildarinnar síðustu tvö ár.
Real er með endurkaupsrétt á leikmanninum fyrir svo lítið sem 9 milljónir evra.
„Nico Paz er einn af þessum stórkostlegu leikmönnum sem komu upp í gegnum unglingastarfið hjá okkur og núna er hann eftirsóttur af stórveldum víða um Evrópu," sagði Pérez.
„Hann átti stórkostlegt tímabil með Como og við munum taka ákvörðun varðandi framtíð hans í samráði við nýjan stjóra og þjálfarateymið."
30.05.2026 14:17
Tilkynna kaupin á Paz eftir kosningarnar


