Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fim 05. júní 2025 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Erfitt að sýna sig í stöðu sem þú ert ekki fullkomlega sáttur við"
Mynd: Brighton
Danski miðjumaðurinn Matt O'Riley er ekki fullkomlega ánægður með stöðu sína hjá Brighton. Hann var að klára sitt fyrsta tímabil hjá félaginu.

Hann var keyptur frá Celtic síðasta sumar og var í vikunni orðaður við Everton.

O'Riley hefur ekki náð að vinna sér inn fast sæti í liði Fabian Hürzeler, ef hann spilar þá var það oft af bekknum.

„Ég spila best í áttu stöðunni, þar sem ég get farið á milli teiganna," sagði O'Riley við danska miðilinn BT.

„Ég hef bara spilað tvo leiki þar, annars hef ég verið notaður á vængnum, sem fölsk nía eða eitthvað annað."

„Það gerir þér erfitt fyrir að sýna þig þegar þú ert að spila stöðu sem þú ert ekki fullkomlega sáttur við."

„Ég er bara að segja mína skoðun. Ég get spilað betur fyrir liðið ef ég spila áttu stöðuna, en ég get spilað vel í öðrum stöðum. Ef þú ert heiðarlegur í samskiptum þá áttu ekki að tapa neinu á því. Stjórinn getur svo sagt að hann sé ekki sammála,"
sagði O'Riley.

Hann er 24 ára og var keyptur á um 25 milljónir punda síðasta sumar. Hann byrjaði ellefu leiki í úrvalsdeildinni í vetur og kom tíu sinnum inn á. Í 21 leik skoraði hann tvö mörk og lagði upp þrjú.
Athugasemdir