Antony, leikmaður Manchester United, er einn af þeim sem Bayer Leverkusen er að skoða þegar Florian Wirtz yfirgefur félagið.
Wirtz er að öllum líkindum að ganga í raðir Liverpool, en það virðist bara í raun vera tímaspursmál hvenær það gengur í gegn.
Wirtz er að öllum líkindum að ganga í raðir Liverpool, en það virðist bara í raun vera tímaspursmál hvenær það gengur í gegn.
Erik ten Hag, nýráðinn stjóri Bayer Leverkusen, þekkir Antony mjög vel en hann þjálfaði hann hjá bæði Ajax og Man Utd. Ten Hag var stjóri United þegar Antony var keyptur þangað fyrir 80 milljónir punda sumarið 2022.
Antony hefur engan veginn náð sér á strik hjá Man Utd en hann gerði vel á láni hjá Real Betis seinni hluta síðasta tímabils.
Ólíklegt er að Betis hafi efni á því að kaupa Antony, en United vill helst selja brasilíska kantmanninn. Þegar Wirtz er seldur, þá gæti komið gott tilboð á borðið frá Leverkusen.
Athugasemdir