Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fim 05. júní 2025 11:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þetta er riftunarákvæðið í samningi Kudus - Tilboði Chelsea hafnað
Mynd: EPA
Chelsea er meðal félaga sem hefur áhuga á Mohammed Kudus sóknarmanni West Ham. Það er Daily Mail sem fjallar um málið.

Sóknarmaðurinn er með ákvæði í samningi sínum sem gerir öðrum úrvalsdeildarfélögum kleift að kaupa hann lausan fyrir 85 milljónir punda fyrstu tíu dagana í jú?í.

Það hefur verið áhugi frá Sádi-Arabíu en Kudus hefur ekki áhuga að fara úr úrvalsdeildinni. Hann er sagður vera með sérstakt 120 milljóna punda Sádi-Arabíu riftunarákvæði.

Kudus er 24 ára Ganverji kom til West Ham frá Ajax sumarið 2023 og hefur skorað 19 mörk og lagt upp tíu í 80 leikjum fyrir West Ham.

talkSPORT fjallar um það í dag að West Ham hafi hafnað tilboði frá Chelsea í leikmanninn. Chelsea er sagt hafa boðið óuppgefna upphæð og leikmenn í skiptum. Fjallað er um markmanninn Robert Sanchez og miðjumanninn Kiernan Dewsbury-Hall sem hluta af tilboðinu.

West Ham er í markmannsleit eftir að Lukasz Fabianski yfirgaf félagið og hefur verið orðað við Aaron Ramsdale.
Athugasemdir
banner
banner