Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fim 05. júní 2025 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Cole Palmer breytir um númer
Palmer hefur leikið í treyju númer 20 hjá Chelsea.
Palmer hefur leikið í treyju númer 20 hjá Chelsea.
Mynd: EPA
Enski landsliðsmaðurinn Cole Palmer mun ekki leika áfram í treyju númer 20 hjá Chelsea.

Hann hefur ákveðið að taka upp nýtt númer, en hann verður framvegis með 10 á bakinu.

Palmer hefur verið númer 20 frá því hann gekk í raðir Chelsea frá Manchester City síðla sumars 2023. Hann mun klæðast nýja númerinu í fyrsta sinn á HM félagsliða núna í sumar.

Palmer hefur leikið frábærlega með Chelsea frá því hann gekk í raðir félagsins og er algjör lykilmaður fyrir Lundúnafélagið.

Mykhaylo Mudryk var síðast með númerið en hann er í banni frá fótbolta eftir að hann féll á lyfjaprófi. Eden Hazard var lengi með þetta númer á bakinu.

Liam Delap, nýr leikmaður Chelsea, tekur þá treyju númer 9.
Athugasemdir
banner
banner