Estevao Willian er nafn sem fólk mun þurfa leggja á minnið, en Carlo Ancelotti, nýr þjálfari brasilíska landsliðsins, segir hann með ótrúlega hæfileika.
Estevao er 18 ára gamall og talinn sá allra efnilegasti í heiminum um þessar mundir.
Chelsea hefur þegar landað Estevao en hann mun formlega ganga í raðir félagsins í næsta mánuði.
Kantmaðurinn er í brasilíska landsliðinu sem mætir Ekvador og Paragvæ í undankeppni HM í þessum mánuði og er Ancelotti heillaður af undrabarninu.
„Ég vissi þegar af Estevao. Ég hafði aldrei hitt hann í persónu, bara séð hann í sjónvarpinu og myndbönd af honum á netinu, en ég sé það sem aðrir sjá; að hann sé ótrúlega sérstakur leikmaður, með sérstaka hæfileika. Hann er mjög ungur og á enn eftir að læra margt.“
„Estevao er hæfileikaríkur og auðmjúkur leikmaður sem hefur drifkraftinn og persónuleikann. Hann er ótrúlega skapandi með búnt af gæðum. Augljóslega er hann með alla eiginleika til þess að verða mikilvægur með brasilíska landsliðinu í framtíðinni,“ sagði Ancelotti.
Athugasemdir