
Jóhann Berg Guðmundsson verður ekki með íslenska landsliðinu í vináttulandsleiknum gegn Skotlandi annað kvöld.
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari greindi frá þeim leiðindafréttum á fréttamannafundi Íslands á Hampden Park að Jóhann hefði meiðst og ekki komist í gegnum síðustu æfingu fyrir leikinn.
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari greindi frá þeim leiðindafréttum á fréttamannafundi Íslands á Hampden Park að Jóhann hefði meiðst og ekki komist í gegnum síðustu æfingu fyrir leikinn.
Jóhann Berg er kominn með 99 landsleiki og hafði vonast eftir því að komast í 100 leikja klúbbinn á morgun en ekki verður af því.
Ísland spilar tvo leiki í þessum glugga en liðið mætir Norður-Írlandi á þriðjudaginn í Belfast. Arnar segist með góð tilfinningu fyrir leiknum.
„Þetta er mín fyrsta heimsókn á Hampden Park, þennan goðsagnakennda leikvang. Skotar eru með mjög sterkt lið," segir Arnar. Hann var spurður að því hvort hann myndi dreifa spilmínútunum á hópinn yfir þessa tvo leiki?
„Manni langar að sjá sem flesta en það verður bara að koma í ljós. Við stefnum á að koma í gluggann í haust með fullt sjálfstraust. Í draumaheimi viljum við vinna báða leikina og gefa mönnum fullt af mínútum."
Vináttulandseikur Skotlands og Íslands hefst 18:45 annað kvöld.
Athugasemdir