Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fim 05. júní 2025 13:00
Brynjar Ingi Erluson
Sunderland velur gæði fram yfir magn
Mynd: Sunderland
Nýliðar Sunderland eru farnir að undirbúa endurkomu sína í ensku úrvalsdeildina en félagið ætlar að bæta fjórum til fimm leikmönnum við hópinn í sumarglugganum.

Sunderland vann Sheffield United, 2-1, í hreinum úrslitaleik á Wembley í síðasta mánuði og staðfesti um leið sæti sitt í úrvalsdeildina.

Liðið mun spila í deildinni í fyrsta sinn síðan 2017 og er þá á döfinni að styrkja hópinn.

Sky Sports segir að félagið ætli ekki að fylla hópinn af nýjum leikmönnum heldur kemur til greina að fá mögulega fjóra eða fimm leikmenn sem munu styrkja hryggjarsúluna.

Enzo Le Fee gekk á dögunum í raðir félagsins fyrir 20 milljónir punda og þá er Sunderland sagt halda í vonina um að halda Jobe Bellingham áfram, en hann hefur verið sterklega orðaður við Borussia Dortmund í Þýskalandi.

Sunderland hefur ekki enn samþykkt 25 milljóna punda tilboð Dortmund í Englendinginn.

Samkvæmt Sky er Sunderland ekki að eltast við Jordan Henderson, leikmann Ajax, en það er þó ekki útilokað að hann muni ganga í raðir félagsins síðar í glugganum.

Það er alla vega ljóst að Sunderland mun velja gæði fram yfir magn. Félagið ætlar að kaupa rétt og halda í þá leikmenn sem komu liðinu upp í deild þeirra bestu.
Athugasemdir
banner