Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fim 05. júní 2025 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Kristján Atli framlengir við toppliðið
Lengjudeildin
Mynd: ÍR
Miðjumaðurinn Kristján Atli Marteinsson skrifaði í gær undir nýjan tveggja ára samning við ÍR.

Kristján Atli er 27 ára gamall uppalinn HK-ingur sem hefur komið víða við á ferli sínum.

Hann hóf meistaraflokksferil sinn hjá HK áður en hann söðlaði um og spilaði með Fjarðabyggð, Selfossi, Magna, Aftureldingu, Kórdrengjum og Þór áður en hann samdi við ÍR fyrir síðustu leiktíð.

Kristján spilaði alla leiki nema einn þegar ÍR komst í umspil Lengjudeildarinnar á síðasta ári og verið gríðarlega mikilvægur hlekkur á miðsvæði liðsins.

ÍR er afar ánægt með hans framlag til félagsins og nú verðlaunað hann með nýjum samningi sem gildir út 2027.

Kristján hefur spilað alla sex leiki í Lengjudeildinni á tímabilinu og skorað eitt mark, en ÍR-ingar sitja á toppnum eftir að hafa unnið Þrótt R., 2-1, í toppslag deildarinnar í gær.
Athugasemdir
banner