Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
   lau 07. mars 2026 12:29
Brynjar Ingi Erluson
Kokkur kærir Neymar - Vill rúmar sex milljónir í skaðabætur
Mynd: EPA
Fyrrum kokkur brasilíska sóknarmannsins Neymars hefur höfðað mál gegn honum og fer fram á rúmar sex milljónir íslenskra króna í skaðabætur. Metropoles greinir frá þessu.

Kokkurinn starfaði sem einkakokkur Neymar í nokkra mánuði og heldur því fram að hún hafi unnið sextán tíma vaktir þar sem hún undirbjó mat fyrir hann og allt að 150 manns daglega.

Metropoles segist hafa séð hluta af skjölunum þar sem kemur fram að hún hafi hlotið meiðsli í baki og bólgur í mjöðm.

Hún hafi leitað til læknis en Neymar ekki greitt lækniskostnað og látið hana vinna langt fram yfir þann tíma sem hún hafði upprunalega samþykkt og fengið lítinn hvíldartíma á vöktunum.

Konan, sem þénaði um 180 þúsund krónur í mánaðarlaun, fer fram á 6,3 milljónir í skaðabætur.

Neymar, sem er 34 ára gamall, er í dag á mála hjá Santos í heimalandinu en hann hefur komið að þremur mörkum í þremur leikjum á tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner