Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   fös 06. mars 2026 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kristófer fari ekki nema Blikar finni framherja
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net greindi frá því í síðasta mánuði að Valsmenn hefðu boðið í Kristófer Inga Kristinsson (1999) hjá Breiðabliki.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net eru möguleg skipti í biðstöðu þar sem Breiðablik sé ekki tilbúið að selja Kristófer nema búið verði að finna mann í hans stað. Kristófer er sóknarmaður sem spilað hefur á kantinum eða sem fremsti maður.

Sem stendur eru kostirnir í stöðu fremsta manns af skornum skammti hjá Breiðabliki en Ágúst Orri Þorsteinsson leysti þá stöðu undir lok síðasta árs.

Kristófer, sem verður samningslaus eftir tímabilið, er sagður tilbúinn að fara til Vals. Hann gekk í raðir Breiðabliks sumarið 2023 en hefur ekki almennilega náð að stimpla sig inn sem byrjunarliðsmaður hjá Blikum.

Breiðablik er orðað við Danijel Dejan Djuric og Árna Vilhjálmsson. Danijel er sóknarsinnaður miðjumaður en Árni er framherji.
Athugasemdir
banner