Thuram á óskalistum Arsenal, Liverpool og Man Utd - Ólíklegt að Real reyni við Rodri - Liverpool vill Diomande
   fim 05. mars 2026 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Franskir fjölmiðlar gagnrýna leikmann Arsenal harðlega
Mynd: EPA
Ethan Nwaneri, sem er á láni hjá Marseille í Frakklandi frá enska félaginu Arsenal, fær mikla gagnrýni út af vítaklúðri sínu gegn Toulouse í franska bikarnum í gær.

Leikur Marseille og Toulouse fór í vítaspyrnukeppni þar sem Nwaneri, sem hafði komið inn á sem varamaður í seinni hálfleik, klikkaði á punktinum. Tilraun hans flaug yfir slána og greip hann um höfuð sitt. Toulouse vann leikinn og fer í undanúrslitin.

Nwaneri fær 4/10 í einkunn fyrir sína innkomu í leikinn. „Klúðraði möguleikanum á því að fara áfram," segir m.a. í umfjöllun L'Equipe. Þar segir að hann hafi ekki haft nægilega mikil áhrif í leiknum en er þó hrósað þar sem leikur liðsins batnaði við hans innkomu. Það er einnig gagnrýnt að Nwaneri hafi yfir höfuð tekið víti og að reynslumeiri leikmenn hefðu átt að vera á punktinum í hans stað. Nwaneri tók fimmta víti Marseille í keppninni.

Eurosport France var ekki hrifið af innkomu Nwaneri. Þar segir að miðsvæðið hafi veikst við innkomu hans.

Foot Mercato segir að það hafi komið á óvart að Nwaneri hafi tekið síðasta vítið. Hann hafi ekki náð að koma með stöðugleika með innkomu sinni og að Toulouse hafi verið með yfirburði á miðsvæðinu. Hann fær fjóra í einkunn frá miðlinum. „Svæði opnuðust á miðjunni eftir innkomu hans. Ungi Englendingurinn náði ekki að finna fótfestu og sendi boltann oft til baka. Hann klúðraði lokaspyrnu OM sem reyndist banabitinn."

Nwaneri, sem verðu nítján ára seinna í mánuðinum, byrjaði vel hjá Marseille, skoraði í frumrauninni, en hefur í kjölfarið fengið talsverða gagnrýni. Umhverfið hjá Marseille er ekki það auðveldasta að höndla, mikil pressa frá fjölmiðlum og stuðningsmönnum og hefur verið talsverð ólga í kringum félagið í kringum brotthvarf stjórans Roberto De Zerbi sem fékk Nwaneri til félagsins. Habib Beye tók í kjölfarið við.
Athugasemdir
banner
banner