Atletico Madrid er mjög vongott um að halda í Antoine Griezmann út tímabilið, en það lítur út fyrir að hann muni yfirgefa félagið í sumar. Atletico hefur þegar byrjað að gera tilraunir til að fá annan leikmann í staðinn fyrir frakkann.
Griezmann hefur verið orðaður við Orlando City í MLS deildinni í Bandaríkjunum en Griezmann vill vera áfram til að freista þess að lyfta spænska bikarnum með Atletico í fyrsta sinn en liðið mætir Real Sociedad í úrslitum.
Atletico hefur áhuga á Kang-in Lee, leikmanni PSG, en félagið bauð í hann í janúar.
PSG hafnaði tilboðinu og vill semja við leikmanninn en samningur hans við franska félagið rennur út árið 2028.
Athugasemdir


