Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   fös 06. mars 2026 15:30
Kári Snorrason
Duracell kanínan: Sjáðu frábært mark Osula gegn United
William Osula.
William Osula.
Mynd: EPA
William Osula skoraði stórbrotið sigurmark í leikhúsi draumanna á miðvikudag er hann tryggði Newcastle stigin þrjú gegn Manchester United.

Óhætt er að segja að Osula hafi búið til markið upp á sínar eigin spýtur en hann átti magnaðan sprett upp hægri vænginn og skar inn á vinstri fótinn þar sem hann smurði svo boltanum út við fjærstöng.

Fyrir bæði mark sitt og sprett sinn fær Daninn geðþekki hina virtu Duracell viðurkenningu vikunnar frá Fótbolta.net.


Enski boltinn - Hveitibrauðsdagarnir að baki
Athugasemdir
banner
banner