Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   fös 06. mars 2026 16:00
Kári Snorrason
Pabbi Ödegaard slær í gegn með Lilleström
Mynd: Lilleström
Hans Erik Ödegaard, pabbi Martin Ödegaard fyrirliða Arsenal, hefur náð eftirtektarverðum árangri sem þjálfari í Noregi. Hann tók við stjórnartaumum Lilleström fyrir um ári síðan.

Hann tryggði liðinu upp í Eliteserien úr næst efstu deild á afstöðnu tímabili með pompi og prakt.

Liðið fór ósigrað í gegnum deildina og vann 25 af 30 leikjum. Lilleström endaði með 80 stig, heilum 25 stigum fyrir ofan Start sem endaði í 2. sæti.

Hans Erik hefur starfað lengst af sem þjálfari í yngri flokkum og var hann meðal annars þjálfari í U17 liði Real Madrid þegar sonurinn var á mála hjá félaginu.

Hann var fenginn til Lilleström frá Sandefjord, sem var hans fyrsta þjálfarastarf í meistaraflokki.

Fróðlegt verður að sjá hvernig lærisveinar Hans Erik standa sig í Eliteserien á komandi tímabili en það hefst eftir rúma viku.


Athugasemdir
banner
banner