Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   fös 06. mars 2026 18:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Æfingaleikur: Mjög langþráð endurkoma í sigri Aftureldingar
Tristan er mættur aftur á völlinn
Tristan er mættur aftur á völlinn
Mynd: Grótta
Enes Þór skoraði fyrir Aftureldingu.
Enes Þór skoraði fyrir Aftureldingu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grótta 2 - 3 Afturelding
Mörk Aftureldingar: Georg Bjarnason, Elmar Kári Enesson Cogic og Enes Þór Enesson Cogic
Mörk Gróttu: Dagur Bjarkason og Andri Freyr Jónasson.

Lengjudeildarliðin Grótta og Afturelding mættust í æfingaleik í gær og vann Afturelding 2-3 sigur.

Bræðurnir Elmar Kári og Enes Þór Enessynir voru á skotskónum hjá Mosfellingum. Georg Bjarnason var svo þriðji markaskorarinn. Dagur Bjarkason og Andri Freyr skoruðu mörk Gróttu.

Tristan Freyr Ingólfsson samdi við Gróttu og spilaði sinn fyrsta leik í mjög langan tíma. Hann hefur glímt við mjög erfið meiðsli og sneri til baka á völlinn í gær. Hægt er að lesa viðtal við hann frá því fyrr í vetur í tenglinum hér að ofan.




Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner