Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   fös 06. mars 2026 20:27
Ívan Guðjón Baldursson
Wilshere dreymir um Championship: Gæti mætt Tottenham
Mynd: Luton Town
Jack Wilshere, fyrrum leikmaður Arsenal til margra ára, er við stjórnvölinn hjá Luton Town sem leikur í League One deildinni, þriðju efstu deild enska boltans.

Luton er í baráttu um umspilssæti og dreymir Wilshere um að fara með liðið upp í Championship deildina.

„Draumurinn er að þjálfa Luton í Championship deildinni," svaraði Wilshere þegar hann var spurður hvort það væri draumurinn að spila við Tottenham í deildarkeppni á næstu leiktíð.

„Ég horfði á Tottenham í gærkvöldi og hvort sem þið trúið því eða ekki þá er stór hluti fjölskyldu minnar stuðningsmenn Tottenham.

„Draumurinn er að þjálfa Luton í Championship ... og það gæti verið gegn Tottenham."


   06.03.2026 09:25
Tottenham búið að gefast upp? - Sjáðu það helsta úr tapinu gegn Palace

Athugasemdir
banner
banner