Thuram á óskalistum Arsenal, Liverpool og Man Utd - Ólíklegt að Real reyni við Rodri - Liverpool vill Diomande
banner
   fim 05. mars 2026 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lewandowski: Rashford hefur allt
Mynd: EPA
Robert Lewandowski, framherji Barcelona, er mjög ánægður með samherja sinn, Marcus Rashford, hjá Barcelona.

Rashford er á láni frá Man Utd en talið er að hann muni ganga alfarið til liðs við spænska félagið í sumar. Hann hefur komið að 23 mörkum í 36 leikjum á tímabilinu fyrir Barcelona.

„Hann hefur allt. Hraða, tækni, skot með vinstri og hægri fæti og hæfni. Ef þú færir honum sjálfstraust sér hann að þú hefur trú á honum og hann gefur þér 200 prósent til baka," sagði Lewandowski.

„Hann er mjög fínn gaur. Við spjöllum mikið saman því við sitjum hlið við hlið í klefanum. Við spilum borðtennis. Ef hann er með sjálfstraust getur hann spilað sinn besta fótbolta á besta getustiginu."
Athugasemdir
banner
banner