Miðjumaður Juventus er orðaður við ensk stórlið, ólíklegt er að Real Madrid reyni við Rodri og Liverpool vill Diomande. Þetta og fleira í slúðurpakkanum. BBC tók saman.
Arsenal, Liverpool og Manchester United hafa áhuga á franska miðjumanninum Khephren Thuram (24) hjá Juventus og gætu gert tilboð. (CaughtOffside)
Manchester United reiknar með því að Barcelona muni kaupa framherjann Marcus Rashford (28) alfarið. (MD)
Real Madrid hefur fjarlægst þann möguleika að reyna við Rodri (29), miðjumann Manchester City. Ein ástæðan er sú að spænski landsliðsmaðurinn gæti kostað að minnsta kosti 52 milljónir punda (60 milljónir evra). (Sport)
Andoni Iraola æihugar að skrifa undir nýjan samning við Bournemouth þrátt fyrir að vera orðaður við Crystal Palace og Tottenham. (Mail)
Dele Alli (29), fyrrum miðjumaður Tottenham og Englands, er farinn að æfa með Tottenham en hann leitast eftir endurkomu í fótboltann eftir að hafa yfirgefið ítalska félagið Como í september. (Standard)
Thomas Frank, fyrrum stjóri Brentford og Tottenham, er á blaði Crystal Palace yfir stjóra sem gætu komið í stað Oliver Glasner, sem lætur af störfum hjá félaginu í sumar. (Sun)
Franski framherjinn Antoine Griezmann (34) liggur undir feldi og þarf að taka ákvörðun um hvort hann verði áfram hjá Atletico Madrid eða fara til Orlando City í Bandaríkjunum. (Footmercato)
Bayern München íhugar það alvarlega að gera tilboð í nígeríska sóknarmanninn Victor Osimhen (27) hjá Galatasaray þar sem félagið býr sig undir þann tímapunkt þegar Harry Kane (32) mun fara. (Footmercato)
Þýska félagið RB Leipzig vill fá um 70 milljónir punda ef félagið á að selja vængmanninn Yan Diomande (19). Fílabeinsstrendingurinn hefur verið orðaður við Liverpool og Manchester United. (Football Insider)
Liverpool hefur beint athygli sinni að Diomande þar sem félagið telur að það muni ekki getað fengið franska vængmanninn Michael Olise (24) sem vill skrifa undir nýjan samning við Bayern München. (Sky Sports Þýskalandi)
Skoski U17 landsliðsmiðjumaðurinn Keir McMeekin (16) er á leið frá Hearts til Manchester City. (Mail)
Athugasemdir


