Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   fös 06. mars 2026 17:59
Ívan Guðjón Baldursson
Segja að Arsenal neyðist til að selja menn í sumar
Telegraph segir að Arsenal gæti selt fyrirliðann sinn í sumar.
Telegraph segir að Arsenal gæti selt fyrirliðann sinn í sumar.
Mynd: EPA
Arsenal hefur styrkt leikmannahópinn sinn umtalsvert í síðustu félagaskiptagluggum og þarf því að selja einhverja leikmenn í komandi sumarglugga, samkvæmt frétt frá Telegraph.

Arsenal er búið að eyða rúmum 260 milljónum punda í leikmannakaup undanfarin misseri án þess að selja mikið af leikmönnum. Það er um 250 milljóna punda halli sem þýðir að Arsenal þarf því líklegast að selja leikmenn fyrir um 60 til 80 milljónir næsta sumar til að standast fjármálareglur ensku deildarinnar og UEFA. Sú upphæð lækkar umtalsvert ef Arsenal stendur uppi sem sigurvegari í Meistaradeild Evrópu.

Telegraph talar um að Arsenal sé að skoða sölur á ýmsum leikmönnum. Uppöldu leikmennirnir Ethan Nwaneri og Myles Lewis-Skelly koma þar til greina ásamt fyrirliðanum Martin Ödegaard og kantmanninum Gabriel Martinelli.

Nwaneri er hjá Marseille á lánssamningi þessa dagana á meðan Lewis-Skelly er fallinn aftast í goggunarröð vinstri bakvarða hjá Arsenal.

Ödegaard er fyrirliði Arsenal en virðist vera búinn að missa byrjunarliðssætið sitt á miðjunni til Eberechi Eze á meðan Martinelli er á eftir Leandro Trossard í goggunarröð vinstri kantmanna.
Athugasemdir
banner