Thuram á óskalistum Arsenal, Liverpool og Man Utd - Ólíklegt að Real reyni við Rodri - Liverpool vill Diomande
banner
   fim 05. mars 2026 16:08
Elvar Geir Magnússon
KA reynir að fá Tarik frá Víkingi
Akureyrarfélagið KA reynir að fá Tarik Ibrahimagic.
Akureyrarfélagið KA reynir að fá Tarik Ibrahimagic.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Akureyrarfélagið KA reynir að fá Tarik Ibrahimagic frá Víkingi samkvæmt heimildum Fótbolta.net.

Mikið hefur verið rætt og ritað um mikla breidd hjá Íslandsmeisturunum og sögusagnir verið í gangi um að þeir séu tilbúnir að hlusta á tilboð í miðjumanninn fjölhæfa.

Tarik er 25 ára Dani sem hefur verið í eitt ár hjá Víkingi, en hann kom frá Vestra þar em hann lék í tvö tímabil.

Tarik kom við sögu í 25 af 27 leikjum Víkings í Bestu deildinni í fyrra og hjálpaði liðinu að landa Íslandsmeistaratitlinum. KA endaði í sjöunda sæti, í efsta sæti neðri hlutans.
Athugasemdir
banner
banner