Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   mið 04. mars 2026 21:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Atli Þór á leið í Fram
Atli Þór Jónasson.
Atli Þór Jónasson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Atli Þór Jónasson, sóknarmaðurinn stóri og stæðilegi, er að ganga í raðir Fram frá Víkingi.

Þetta herma heimildir Fótbolta.net.

Eins og Fótbolti.net hefur fjallað um frá því í byrjun árs, þá hefur verið mikill áhugi á Atla og Framarar eru búnir að vinna kapphlaupið um hann.

Víkingur sótti Atla frá HK fyrir síðasta tímabil en hann náði ekki að festa sig í sessi í liði Íslandsmeistarana. Atli kom við sögu í ellefu deildarleikjum síðasta sumar og skoraði í þeim eitt mark. Samkeppnin fram á við hjá Víkingum er mikil en félagið sótti í vetur Elías Má Ómarsson úr atvinnumennsku.

Framarar hafa verið rólegir á leikmannamarkaðnum í vetur en það verður spennandi að sjá hvernig Atli mun koma inn í þetta hjá þeim.
Athugasemdir
banner