Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   fös 06. mars 2026 23:02
Ívan Guðjón Baldursson
Ólafur hafði betur gegn Nóel Atla
Mynd: AaB/Sebastian Holmquist
Mynd: Aarhus Fremad
Það voru nokkur Íslendingalið sem mættu til leiks í dag. Í danska boltanum komu Ólafur Dan Hjaltason og Nóel Atli Arnórsson við sögu er Álaborg tók á móti Aarhus Fremad.

Ólafur Dan og Nóel Atli komu inn af bekknum í síðari hálfleik en gestirnir frá Árósum höfðu betur.

Eitt stig skilur að á milli liðanna í neðri hluta næstefstu deildar.

Breki Baldursson var ónotaður varamaður í naumum sigri Esbjerg gegn HB Köge. Esbjerg deilir toppsæti deildarinnar með Lyngby sem á leik til góða.

Þá var Ari Leifsson ekki í hóp í sigri Kolding á Hobro.

Í næstefstu deild í Hollandi fékk Helgi Fróði Ingason að spila seinni hálfleikinn í jafntefli hjá Helmond gegn Oss. Helmond er í neðri hluta deildarinnar.

Oliver Stefánsson var að lokum ónotaður varamaður í stóru tapi Tychy í næstefstu deild í Póllandi. Tychy er í botnsæti deildarinnar, sex stigum frá öruggu sæti.

Aalborg 0 - 1 Aarhus Fremad

Köge 0 - 1 Esbjerg

Kolding 2 - 1 Hobro

Helmond 1 - 1 Oss

Stal Mielec 4 - 0 Tychy

Athugasemdir
banner
banner