Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
banner
   fim 05. mars 2026 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arteta orðinn þreyttur á gagnrýninni - „Kemur á óvart"
Arteta
Arteta
Mynd: EPA
Hürzeler
Hürzeler
Mynd: EPA
Fabian Hürzeler, stjóri Brighton, var ekki hrifinn af leik Arsenal sem vann 0-1 sigur á Brighton í gær. Arsenal skapaði lítið í leiknum, en skoraði eina markið, sem er það sem telur og jók forystu sína í sjö stig á toppi deildarinnar.

Hürzeler hafði varað við því fyrir leikinn að Arsenal tæki langan tíma í föst leikatriði og eftir leikinn spurði hann fjölmiðlamenn hvort þeir myndu eftir því að hafa séð markmann fara þrisvar sinnum niður og leikurinn stöðvaður.

„Það var aðeins eitt lið sem reyndi að spila fótbolta í kvöld. Ég verð aldrei stjóri sem mun reyna að vinna leiki svona. Enska úrvalsdeildin þarf skýrari reglur fyrir það þegar verið er að tefja leikinn," sagði Hürzeler á fréttamannafundi eftir leikinn.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var spurður út í ummæli Hürzeler.

„Kemur á óvart," sagði Arteta í hálfgerðu andvarpi. Hann vildi ekki bæta neinu við það svar sitt.

„Ef farið er til síðustu leikja þá finnið þið margar svona athugasemdir. Ég elska leikmennina mína, við elskum þá og ég elska hvernig við keppum."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
2 Man City 32 20 7 5 65 29 +36 67
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Chelsea 33 13 9 11 53 42 +11 48
7 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
8 Bournemouth 33 11 15 7 50 50 0 48
9 Brighton 33 12 11 10 45 39 +6 47
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 31 11 9 11 35 36 -1 42
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 33 9 12 12 42 49 -7 39
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 32 8 8 16 40 57 -17 32
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 33 4 8 21 34 67 -33 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner