Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   mið 04. mars 2026 21:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía: Mikil dramatík í fyrri leiknum
Lazio gerði jafntefli við Atalanta.
Lazio gerði jafntefli við Atalanta.
Mynd: EPA
Lazio 2 - 2 Atalanta
1-0 Fisayo Dele-Bashiru ('47 )
1-1 Mario Pasalic ('51 )
2-1 Boulaye Dia ('87 )
2-2 Yunus Musah ('90 )

Það var dramatík þegar Lazio og Atalanta áttust við í ítalska bikarnum í kvöld.

Þetta var fyrri leikur liðanna í undanúrslitunum. Como og Inter mætast í hinu undanúrslitaeinvíginu en þar voru lokatölur 0-0 í gærkvöldi.

Það var aðeins meira fjör í þessum leik í kvöld þrátt fyrir markalausan fyrri hálfleik. Á upphafsmínútum seinni hálfleiks kom Fisayo Dele-Bashiru, fyrrum leikmaður Sheffield Wednesday, liði Lazio yfir en forystan var mjög stutt þar sem Mario Pasalic jafnaði fjórum mínútum síðar.

Boulaye Dia kom Lazio yfir á 87. mínútu og héldu margir að það væri sigurmarkið, en svo var ekki því Atalanta jafnaði metin í uppbótartímanum. Yunus Musah gerði það, lokatölur 2-2.

Lazio er að reyna að komast í sinn fyrsta bikarúrslitaleik síðan 2019 en þá unnu þeir einmitt Atalanta í úrslitaleiknum. Það er allt opið fyrir seinni leikinn í þessu einvígi, eins og í hinu einvíginu.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner