Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   fim 05. mars 2026 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sekta ekki fyrirliðann sinn
Ezri Konsa.
Ezri Konsa.
Mynd: EPA
Aston Villa hefur ákveðið gegn því að sekta fyrirliðann sinn, Ezri Konsa, eftir að hann lét stuðningsmenn liðsins heyra það í kjölfarið á tapi gegn Úlfunum.

Villa tapaði 2-0 gegn Úlfunum á dögunum en þeir stuðningsmenn Villa sem höfðu ferðast á leikinn voru ósáttir í leikslok og létu leikmenn vita af því.

Konsa var ekki ánægður með eitthvað af því sem var sagt og þurfti að halda aftur að honum.

Samkvæmt The Athletic var það rætt hjá Villa að refsa Konsa fyrir hegðunina en félagið ákvað svo að gera það ekki. Félagið er þó á þeirri skoðun að þarna hafi Konsa sýnt af sér hegðun sem hann átti ekki að gera.
Athugasemdir
banner
banner
banner