Það er mikið um að vera í Lengjubikarnum í dag þar sem tveir leikir eru á dagskrá í kvennaflokki og níu í karlaflokki. Í heildina eru fimm leikir af ellefu í efstu deild.
Þróttur og FH eiga heimaleiki í Laugardal og Hafnarfirði í kvennaflokki. Þróttur er eina liðið í riðlinum sem á ennþá möguleika á að stela toppsætinu af Stjörnunni þrátt fyrir stórt tap í innbyrðisviðureigninni gegn Garðbæingum.
Stjarnan hefur lokið riðlinum með 10 stig úr 5 umferðum og getur Þróttur stolið toppsætinu með sigrum í síðustu tveimur umferðunum, en lokaleikur liðsins er gegn stigalausu botnliði FHL.
Þrótturum bíður þó erfitt verkefni í dag þar sem spennandi lið Grindavíkur/Njarðvíkur hefur verið að gera flotta hluti á undirbúningstímabilinu og getur jafnað Stjörnuna á toppi riðilsins með sigri.
Í karlaflokki eru spennandi slagir víða um land. Í A-deild er keppt í Kópavogi, Vestmannaeyjum og á Akureyri og svo eru þrír leikir á dagskrá í B-deild og þrír í C-deild.
ÍBV tekur á móti Breiðabliki áður en KA spilar við Grindavík í höfuðborg norðursins.
Lengjubikar kvenna - A deild, riðill 1
12:00 Þróttur R. - Grindavík/Njarðvík (AVIS völlurinn)
14:00 FH - FHL (Skessan)
Lengjubikar karla - A deild, riðill 1
11:30 HK - Ægir (Kórinn)
Lengjubikar karla - A deild, riðill 3
16:00 KA - Grindavík (Greifavöllurinn)
Lengjubikar karla - A deild, riðill 4
14:00 ÍBV - Breiðablik (Hásteinsvöllur)
Lengjubikar karla - B deild, riðill 1
16:00 KV - Kormákur/Hvöt (KR-völlur)
Lengjubikar karla - B deild, riðill 2
17:00 Víkingur Ó. - Reynir S. (Akraneshöllin)
Lengjubikar karla - B deild, riðill 3
10:30 Haukar - Þróttur V. (Knatthús Hauka)
Lengjubikar karla - C deild, riðill 3
14:00 KFR - BF 108 (Helluvöllur)
Lengjubikar karla - C deild, riðill 4
13:00 Hamrarnir - Úlfarnir (Greifavöllurinn)
16:00 Smári - Elliði (Fagrilundur - gervigras)
Athugasemdir

