Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   lau 07. mars 2026 06:00
Kári Snorrason
KFK dregur sig úr keppni - Úlfarnir og Afríka upp um deild
Frá viðureign KFK og Magna sumarið 2024.
Frá viðureign KFK og Magna sumarið 2024.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
KFK (Knattspyrnufélag Kópavogs) er hætt starfsemi og hefur mun ekki taka þátt í deildarkeppni á komandi tímabili. Liðið féll niður úr 3. deild á síðustu leiktíð.

Úlfarnir, venslalið Fram, endaði í þriðja sæti í 5. deild á síðustu leiktíð og fara því upp í 4. deild. Þá hefur Afríka farið upp í 5. deild eftir að hafa endað í 3. sæti í utandeildinni síðasta haust.

Spyrnir dróg sig úr keppni í 5. deild fyrr í vetur og gagnrýndi hækkun á þátttökukostnaði. Enn á eftir að gera breytingar á drögum að 5. deild inn á heimasíðu KSÍ en þar er Spyrnir enn skráð í deildina.

Boltafélag Norðfjarðar endaði í fjórða sæti í utandeildinni í fyrra og mun því fara upp í 5. deild ef þeir halda áfram keppni en þeir eru sem stendur ekki skráðir í utandeildina. Hvort það sé vegna þess að þeir séu á leið upp í 5. deild er óvíst.

Athugasemdir
banner
banner