Thuram á óskalistum Arsenal, Liverpool og Man Utd - Ólíklegt að Real reyni við Rodri - Liverpool vill Diomande
banner
   fim 05. mars 2026 09:35
Elvar Geir Magnússon
Stjóri Palace missir ökuréttindin í hálft ár
Oliver Glasner.
Oliver Glasner.
Mynd: EPA
Oliver Glasner, stjóri Crystal Palace, hefur verið sviptur ökuréttindum í sex mánuði eftir hraðakstur sem náðist á umferðarmyndavél í London.

Glasner fór vel yfir hámarkshraða á BMW bifreið sinni og var með önnur umferðarlagabrot á skrá hjá sér fyrir.

Hraðaksturinn átti sér stað í fyrra, tveimur mánuðum eftir að Austurríkismaðurinn hafði stýrt Palace til sigurs í FA-bikarnum.

Glasner játaði sekt sína samstundis og reyndi að losna frá málinu með því að borga sektargreiðslu en þarf að sætta sig við að vera bílprófslaus næsta hálfa árið.

Crystal Palace heimsækir Tottenham í kvöld og ljóst að Glasner getur ekki keyrt sjálfur í leikinn.
Athugasemdir
banner
banner