Leikmaður Nottingham Forest færist nær Manchester City, stórlið berjast um táning hjá Fulham og Liverpool telur sig hafa fundið arftaka Salah. Þetta og fleira í föstudagsslúðrinu.
Manchester City er nálægt því að krækja í enska miðjumanninn Elliot Anderson (23) frá Nottingham Forest en hann skoraði gegn City í vikunni. (TeamTalk)
Anderson vill frekar fara til City en til nágrannana í Manchester United en Forest verðleggur hann á yfir 70 milljónir punda. (TalkSport)
Arsenal, Manchester United og Chelsea ætla að berjast um enska U19 landsliðsmiðvörðinn Samuel Amissah (18) hjá Fulham.(Telegraph)
Liverpool vill fá Yan Diomande (19) frá RB Leipzig til að fylla skarð Mohamed Salah á vængnum og gæti hann kostað 87 milljónir punda. (TeamTalk)
Mauricio Pochettino og Roberto De Zerbi eru efstir á óskalista Tottenham fyrir stjóraleitina í sumar en Robbie Keane, sem nú stýrir Ferencvaros, gæti komið til greina ef Spurs falla í Championship-deildina. (GiveMeSport)
Xabi Alonso er eini stjórinn sem Liverpool vill fá í stað Arne Slot. (TeamTalk)
Ekvadorski varnarmaðurinn Piero Hincapie (24) mun ganga alfarið í raðir Arsenal frá Bayer Leverkusen í sumar. (Sun)
Arsenal þarf að selja aðalliðsmann í sumar og gætu Martin Ödegaard (27) og Gabriel Martinelli (24) komið til greina. (Telegraph)
Manchester United hyggst ræða við Bruno Fernandes (31) um samningamál eftir HM. (Football Insider)
Chelsea og Manchester City eru meðal félaga sem hafa áhuga á þýska miðjumanninum Aleksandar Pavlovic (21) hjá Bayern München en hann myndi kosta 56 milljónir punda. (Caught Offside)
Athugasemdir

