Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   fös 06. mars 2026 22:37
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Santos og Elmas tryggðu sigur fyrir Napoli
Mynd: EPA
Napoli 2 - 1 Torino
1-0 Alisson Santos ('7 )
2-0 Eljif Elmas ('68 )
2-1 Cesare Casadei ('87 )

Ítalíumeistarar Napoli náðu forystunni snemma leiks þegar þeir fengu Torino í heimsókn í eina leik kvöldsins í Serie A.

Brasilíski kantmaðurinn Alisson skoraði eftir frábært einstaklingsframtak á sjöundu mínútu. Hann tók tvöföld skæri úti á vinstri kantinum, lagði boltann fyrir sig og lét vaða með góðu, lágu skoti í nærhornið sem Alberto Paleari réði ekki við.

Napoli var sterkara liðið í fyrri hálfleik og fékk færi til að tvöfalda forystuna sem fóru forgörðum. Í síðari hálfleik skoraði Eljif Elmas eftir góða sókn þar sem hinn lágvaxni Matteo Politano skallaði boltann til hans eftir fyrirgjöf til að leggja markið upp. Elmas skoraði með góðu viðstöðulausu skoti af um átta metra færi.

Gestirnir gáfust ekki upp og náðu að minnka muninn eftir vel útfærða hornspyrnu á lokamínútunum. Cesare Casadei, fyrrum leikmaður Chelsea, skallaði boltann í netið en nær komst Torino ekki. Lokatölur 2-1 fyrir Napoli.

Napoli er í þriðja sæti ítölsku deildarinnar, og er búið að missa af titilbaráttunni. Liðið er í góðri stöðu í meistaradeildarbaráttunni en er dottið úr leik í öllum keppnum.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner