Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
   fim 05. mars 2026 11:59
Elvar Geir Magnússon
Úrslitakeppni Championship deildarinnar stækkuð á næsta ári
Derby er sem stendur í áttunda sæti.
Derby er sem stendur í áttunda sæti.
Mynd: Derby
Ensk félög hafa kosið með því að stækka umspil Championship-deildarinnar en frá og með næsta tímabili taka sex lið í stað fjögurra þátt í úrslitakeppninni um að vinna sér inn sæti í úrvalsdeildinni.

Eins og áður fara tvö efstu liðin í deildinni beint upp en liðin í sætum 3-8 munu berjast um að fylgja upp.

Liðin sem enda í þriðja og fjórða sæti fara beint í undanúrslitin en liðin í sætunum fjórum þar fyrir neðan keppa innbyrðis í einum stökum leik um að komast í undanúrslitin. Liðið sem endar í fimmta sæti mætir áttunda sætinu á heimavelli og sjötta sætið tekur á móti því sjöunda.

Undanúrslitin verða áfram tveir leikir, heima og að heiman, og sigurliðin mætast í úrslitaleik á Wembley í lok maí.

Engar áætlanir eru sem stendur um að taka upp sama fyrirkomulag í C- og D-deildinni.

Eins og áður segir þá tekur breytingin í Championship gildi á næsta ári, þetta tímabilið fara því liðin í þriðja til sjötta sæti í umspilið.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 43 25 11 7 85 43 +42 86
2 Ipswich Town 42 21 13 8 73 44 +29 76
3 Millwall 43 22 10 11 58 47 +11 76
4 Southampton 43 21 12 10 75 51 +24 75
5 Middlesbrough 43 20 13 10 64 44 +20 73
6 Hull City 43 20 9 14 65 61 +4 69
7 Wrexham 43 18 13 12 65 60 +5 67
8 Derby County 43 19 9 15 62 53 +9 66
9 Norwich 43 18 7 18 59 52 +7 61
10 Bristol City 43 16 10 17 54 55 -1 58
11 QPR 43 16 10 17 58 65 -7 58
12 Sheffield Utd 43 17 6 20 61 59 +2 57
13 Birmingham 43 15 12 16 52 53 -1 57
14 Watford 43 14 15 14 52 53 -1 57
15 Swansea 43 16 9 18 51 56 -5 57
16 Preston NE 43 14 15 14 50 55 -5 57
17 Stoke City 43 15 10 18 49 48 +1 55
18 Portsmouth 43 13 12 18 44 57 -13 51
19 Charlton Athletic 43 12 14 17 40 52 -12 50
20 West Brom 43 12 13 18 44 56 -12 49
21 Blackburn 44 12 13 19 39 54 -15 49
22 Oxford United 43 10 14 19 41 55 -14 44
23 Leicester 43 11 14 18 54 65 -11 41
24 Sheff Wed 43 1 12 30 26 83 -57 -3
Slapp
banner