Richarlison, sóknarmaður Tottenham, hefur svarað fyrir sig eftir að fölsuð ummæli undir hans nafni fóru í dreifingu á samfélagsmiðlum.
X-reikningurinn Topskills Sports UK deildi því á mánudag að Richarlison hefði sagt að hann ætlaði ekki að spila á HM í Bandaríkjunum út af átökunum sem núna standa yfir í miðausturlöndum.
X-reikningurinn Topskills Sports UK deildi því á mánudag að Richarlison hefði sagt að hann ætlaði ekki að spila á HM í Bandaríkjunum út af átökunum sem núna standa yfir í miðausturlöndum.
Ummælin voru svona: „Ég neita að spila á HM í Bandaríkjunum ef þeir stoppa ekki stríð sitt gegn Íran."
Þessi færsla vakti gríðarlega athygli og Richarlison þurfti þess vegna að svara fyrir sig.
„Bara til að það sé á hreinu, þá sagði ég þetta aldrei," sagði Richarlison. „Ég er á móti stríði og átökum en ég sagði aldrei að ég myndi ekki spila fyrir Brasilíu á HM."
Athugasemdir

