Tvö félög á Ítalíu eru áhugasöm um að krækja í Alisson, markvörð Liverpool, í sumar.
Alisson gekk í raðir Liverpool árið 2018 og hefur verið aðalmarkvörður liðsins síðan þá. Hann hefur spilað stórt hlutverk í mögnuðum árangri Liverpool á undanförnum árum.
Alisson gekk í raðir Liverpool árið 2018 og hefur verið aðalmarkvörður liðsins síðan þá. Hann hefur spilað stórt hlutverk í mögnuðum árangri Liverpool á undanförnum árum.
Alisson er orðinn 33 ára gamall og spurning hvort að hann horfi í það núna að taka að sér ferska áskorun áður en ferlinum lýkur.
Hann spilaði á Ítalíu með Roma áður en hann gekk í raðir Liverpool og ef hann er á förum í sumar, þá er það líklegur áfangastaður fyrir hann - sem sagt ítalski boltinn.
La Repubblica segir að Juventus og Inter ætli að reyna að fá Alisson en svo er bara spurning hvort Liverpool sé tilbúið að selja.
Athugasemdir



