Hamburger 0 - 1 Bayer
0-1 Christian Kofane ('73 )
0-1 Christian Kofane ('73 )
Það fór einn leikur fram í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld þar sem Hamburger SV tók á móti Bayer Leverkusen.
Ekki var um skemmtilegasta fótboltaleik sögunnar að ræða en staðan var markalaus alveg fram á 73. mínútu þegar Christian Kofane skoraði fyrir gestina.
Kofane er aðeins 19 ára gamall og kemur frá Kamerún. Leverkusen keypti hann frá spænska félaginu Albacete síðasta sumar og hann hefur komið sterkur inn.
Þetta er mikilvægur sigur fyrir Leverkusen sem heldur í við fjögur efstu liðin. Þeir eru núna þremur stigum frá Stuttgart í fjórða sæti. Hamburg er um miðja deild.
Athugasemdir


