Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   lau 07. mars 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland í dag - Ísak spilar við Dortmund
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það eru sex leikir á dagskrá í efstu deild í Þýskalandi í dag þar sem sterk lið mæta til leiks.

Hoffenheim, Bayer Leverkusen, RB Leipzig og Stuttgart eiga öll leiki á sama tíma í meistaradeildarbaráttunni.

Aðeins þrjú stig skilja þessi fjögur sterku fótboltalið að á stöðutöflunni. Þau eru öll svo gott sem örugg með sæti í evrópukeppnum fyrir næstu leiktíð, svo þau eru eingöngu að berjast um meistaradeildarsætin sem eru laus.

Borussia Dortmund, sem situr í öðru sæti sex stigum fyrir ofan fyrrnefnda meistsaradeildarbaráttu, spilar síðasta leik dagsins í Köln.

Dortmund heimsækir þar Ísak Bergmann Jóhannesson og félaga sem eru án sigurs síðustu fjóra leiki í röð og sitja aðeins tveimur stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Leikir dagsins
14:30 Heidenheim - Hoffenheim
14:30 Freiburg - Leverkusen
14:30 RB Leipzig - Augsburg
14:30 Wolfsburg - Hamburger
14:30 Mainz - Stuttgart
17:30 Köln - Dortmund
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 25 21 3 1 92 24 +68 66
2 Dortmund 24 15 7 2 51 25 +26 52
3 Hoffenheim 24 14 4 6 49 31 +18 46
4 Stuttgart 24 14 4 6 48 32 +16 46
5 RB Leipzig 24 13 5 6 46 33 +13 44
6 Leverkusen 24 13 4 7 45 29 +16 43
7 Frankfurt 24 9 7 8 48 49 -1 34
8 Freiburg 24 9 6 9 34 39 -5 33
9 Augsburg 24 9 4 11 30 41 -11 31
10 Union Berlin 24 7 7 10 29 38 -9 28
11 Hamburger 24 6 8 10 26 35 -9 26
12 Gladbach 25 6 7 12 28 43 -15 25
13 Köln 24 6 6 12 33 41 -8 24
14 Mainz 24 5 8 11 27 39 -12 23
15 St. Pauli 24 6 5 13 23 40 -17 23
16 Werder 24 5 7 12 25 44 -19 22
17 Wolfsburg 24 5 5 14 33 53 -20 20
18 Heidenheim 24 3 5 16 22 53 -31 14
Athugasemdir
banner
banner