Celta Vigo 1 - 2 Real Madrid
0-1 Aurelien Tchouameni ('11 )
1-1 Borja Iglesias ('25 )
1-2 Federico Valverde ('94)
0-1 Aurelien Tchouameni ('11 )
1-1 Borja Iglesias ('25 )
1-2 Federico Valverde ('94)
Real Madrid heimsótti Celta Vigo í fyrsta leik helgarinnar í efstu deild spænska boltans og náði stórveldið forystunni strax á elleftu mínútu.
Aurélien Tchouaméni skoraði eftir vel útfærða hornspyrnu en Borja Iglesias jafnaði muninn fyrir Celta í jöfnum slag. Iglesias skoraði af stuttu færi eftir frábæran undirbúning frá Williot Swedberg á vinstri vængnum.
Staðan var jöfn í leikhlé og hélst jöfn allt þar til í uppbótartíma í tíðindalitlum síðari hálfleik, þar sem Real Madrid hélt boltanum mjög vel en náði ekki að skapa góð færi.
Þegar allt stefndi í 1-1 jafntefli tókst Madrídingum að stela sigrinum með miklu heppnismarki, þegar Federico Valverde átti skot utan teigs sem breytti um stefnu af varnarmanni og endaði í netinu.
Heimamenn í liði Celta voru ósáttir með markið því þeir vildu fá dæmt brot í aðdragandanum, en VAR hafði ekkert út á þetta að setja svo markið fékk að standa. Lokatölur 1-2 eftir dramatískt sigurmark seint í uppbótartíma.
Real Madrid þurfti nauðsynlega á þessum sigri að halda eftir tvo tapleiki í röð í La Liga. Real er einu stigi á eftir Spánarmeisturum Barcelona sem tróna á toppinum og eiga leik til góða annað kvöld.
Celta er í evrópubaráttunni með 40 stig eftir 27 umferðir.
Athugasemdir



