Real Madrid fær Bayern Munchen í heimsókn í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.
Real Madrid hefur verið í miklum meiðslavandræðum á þessu tímabili og þá gætu allt að sex leikmenn misst af seinni leik liðanna þar sem þeir eru einni áminningu frá því að fara í bann.
Real Madrid hefur verið í miklum meiðslavandræðum á þessu tímabili og þá gætu allt að sex leikmenn misst af seinni leik liðanna þar sem þeir eru einni áminningu frá því að fara í bann.
Það eru þeir Kylian Mbappe, Vinicius Junior, Aurelien Tchouameni, Jude Bellingham, Dean Huijsen og Alvaro Carreras. Talið er að Bellingham muni byrja á bekknum í kvöld en hann er að snúa aftur eftir smávægileg meiðsli.
Þá eru Konrad Laimer og Dayot Upamecano á hættusvæði hjá Bayern.


