Man Utd íhugar að selja Ugarte - Liverpool vill leikmann í skiptum fyrir Salah - Vini Jr til Englands?
   mán 06. apríl 2026 10:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Máttu ekki taka víti fyrir framan stuðningsmennina sína
Mynd: EPA
Leeds United komst í undanúrslit enska bikarsins í gær í fyrsta sinn í 39 ár eftir sigur á West Ham í lygilegum leik.

Leeds náði tveggja marka forystu og virtist vera að sigla sigrinum heim en West Ham kom til baka og jafnaði metin með tveimur mörkum í uppbótatíma.

Leikurinn endaði í vítaspyrnukeppni þar sem Leeds hafði betur. Um 9000 stuðningsmenn Leeds ferðuðust til Lundúna en Daniel Farke, stjóri Leeds, sagði eftir leikinn að vítaspyrnukeppnin hafi ekki mátt fara fram fyrir framan stuðningsmenn liðsins af öryggis ástæðum.

„Mér var sagt að það væri til skjal undirritað af öryggisfulltrúanum sem sagði að við mættum ekki skjóta í okkar enda. Ég ætla ekki að tjá mig um það en ég held að þið getið séð hvað mér fannst um það.“
Slapp
banner
banner
banner