Man Utd íhugar að selja Ugarte - Liverpool vill leikmann í skiptum fyrir Salah - Vini Jr til Englands?
   mán 06. apríl 2026 12:39
Brynjar Ingi Erluson
Bernardo Silva með tilboð frá Juventus
Mynd: EPA
Ítalska félagið Juventus hefur hafið viðræður við umboðsmann Bernardo Silva, en búið er að tilkynna að hann fari frá Manchester City í sumar.

Framtíð Bernardo er rædd hvert einasta sumar og oft hefur hann veirð nálægt því að yfirgefa Man City en nú hefur verið staðfest að þetta verði hans síðasta tímabil í ljósbláu treyjunni.

Gazetta dello Sport segir Bernardo efstan á óskalista Juventus fyrir sumarið.

Samkvæmt heimildum miðilsins hefur Juventus verið í viðræðum við umboðsmann hans og er reiðubúið að bjóða honum þriggja ára samning með möguleika á fjórða ári.

Hann yrði einn sá allra launahæsti í Juventus með 7-8 milljónir evra í árslaun.

Barcelona og Paris Saint-Germain hafa áður sýnt Bernardo áhuga og þá er hann einnig á lista hjá félögum í Bandaríkjunum og Sádi-Arabíu.
Slapp
banner
banner