Man Utd íhugar að selja Ugarte - Liverpool vill leikmann í skiptum fyrir Salah - Vini Jr til Englands?
   mán 06. apríl 2026 17:06
Brynjar Ingi Erluson
Jón Dagur skoraði í fyrsta sigri Brann
Jón Dagur er kominn á blað í norsku úrvalsdeildinni
Jón Dagur er kominn á blað í norsku úrvalsdeildinni
Mynd: Brann
Jón Dagur Þorsteinsson skoraði sitt fyrsta deildarmark með Brann sem vann sannfærandi 5-1 stórsigur á Ham/Kam í 3. umferð norsku úrvalsdeildarinnar í dag.

Landsliðsmaðurinn gekk í raðir Brann frá Herthu Berlín fyrr á árinu og komið með kraft inn í liðið.

Fyrsta deildarmarkið kom í dag er hann kom Brann í 2-0 forystu á 37. mínútu.

Hann og Kristall Máni Ingason voru í byrjunarliði Brann en fóru síðan af velli í síðari hálfleik. Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon voru ekki með vegna meiðsla.

Þetta var fyrsti sigur Brann á tímabilinu en Freyr Alexandersson er þjálfari liðsins. Viðar Ari Jónsson var ónotaður varamaður hjá Ham/Kam sem er með jafnmörg stig.

Júlíus Mar Júlíusson byrjaði hjá Kristiansund og þá kom Hrannar Snær Magnússon inn af bekknum er liðið tapaði fyrir Bodö/Glimt, 3-0. Kristiansund er með 3 stig eftir þrjá leiki.

Jason Daði Svanþórsson spilaði síðustu mínúturnar í 2-0 sigri Grimsby Town á Crawley í ensku D-deildinni. Þetta var annar leikur hans í röð, en hann hefur glímt við erfið meiðsli á þessari leiktíð.

Grimsby er í 10. sæti með 65 stig og þremur stigum frá umspilssæti þegar liðið á sex leiki eftir.

Daníel Freyr Kristjánsson byrjaði hjá Fredericia sem tapaði fyrir OB, 1-0, í dönsku úrvalsdeildinni. Fredericia er í 10. sæti deildarinnar með 27 stig.

Ólafur Hjaltason kom inn af bekknum hjá Aarhus Fremad sem tapaði fyrir HB Koge, 2-0, í dönsku B-deildinni. Fremad er í 10. sæti með 27 stig.
Slapp
banner
banner