Jamie Gittens, leikmaður Chelsea, er kominn aftur á meiðslalistann en hann hefur ekki spilað síðan í loka janúar.
Hann var nálægt endurkomu í síðasta mánuði en hann varð fyrir bakslagi og endurkomunni var frestað fram yfir nýliðið landsleikjahlé.
Hann var nálægt endurkomu í síðasta mánuði en hann varð fyrir bakslagi og endurkomunni var frestað fram yfir nýliðið landsleikjahlé.
Liam Rosenior greindi frá því eftir 7-0 sigur Chelsea á Port Vale í bikarnum að Gittens hafði æft með liðinu fyrir leikinn en hafi orðið fyrir enn einu bakslaginu.
„Þetta er mikil synd fyrir hann, þetta er held ég í þriðja sinn sem þetta gerist. Við þurfum að hjálpa honum og vera viss um að það sé í lagi með hann," sagði Rosenior.
Gittens gekk til liðs við Chelsea frá Dortmund síðasta sumar en hann hefur komið við sögu í 27 leikjum í öllum keppnum.



