Man Utd íhugar að selja Ugarte - Liverpool vill leikmann í skiptum fyrir Salah - Vini Jr til Englands?
   mán 06. apríl 2026 15:26
Brynjar Ingi Erluson
Glódís í bikarúrslit þriðja árið í röð - Guðrún opnaði markareikninginn
Kvenaboltinn
Glódís Perla er á leið í þriðja bikarúrslitaleikinn í röð
Glódís Perla er á leið í þriðja bikarúrslitaleikinn í röð
Mynd: EPA
Guðrún gerði fyrsta deildarmark sitt með Hammarby
Guðrún gerði fyrsta deildarmark sitt með Hammarby
Mynd: Hammarby
Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur hennar í Bayern München eru komnar í úrslit þýska bikarsins þriðja árið í röð eftir að hafa unnið þægilegan 4-0 sigur á Essen í dag.

Íslenski landsliðsfyrirliðinn fékk að vísu hvíld í þessum leik eftir að hafa spilað í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í vikunni.

Edna Imade skoraði tvö og þá gerðu þær Momoko Tanikawa og Pernille Harder eitt mark hvor.

Andstæðingur Bayern í úrslitum verður enn og aftur Wolfsburg sem hefur verið þeirra kryptónít í úrslitunum. Wolfsburg vann 2-0 sigur á Bayern í bikarúrslitum árið 2024 og árið 2018.

Guðrún Arnardóttir skoraði sitt fyrsta mark með Hammarby sem vann 3-0 sigur á Brommapojkarna í sænsku úrvalsdeildinni. Hún kom Hammarby á bragðið á 5. mínútu leiksins.

Hammarby hefur unnið fyrstu tvo leiki sína í deildinni á þessari leiktíð.

Fanney Inga Birkisdóttir stóð í rammanum hjá Häcken sem vann Vittsjö, 2-1.

Thelma Karen Pálmadóttir kom inn af bekknum hjá sænsku meisturunum sem eru einnig með fullt hús stiga.

Sigdís Eva Bárðardóttir byrjaði hjá Norrköping í 1-1 jafntefli gegn Malmö. Fyrsta stig Norrköping á leiktíðinni en Malmö komið með fjögur stig.
Slapp
banner