Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
   sun 05. apríl 2026 21:48
Elvar Geir Magnússon
PSV varð sófameistari í Hollandi
Þriðji hollenski meistaratitill PSV í röð
Stuðningsmenn PSV skelltu sér út á stræti og torg í dag til að fagna.
Stuðningsmenn PSV skelltu sér út á stræti og torg í dag til að fagna.
Mynd: EPA
PSV Eindhoven er orðið Hollandsmeistari í 27. sinn en fimm umferðir eru eftir af tímabilinu. Sigur PSV varð staðfestur í dag þegar keppinautarnir í Feyenoord gerðu markalaust jafntefli gegn Volendam.

PSV, sem Peter Bosz stýrir, vann 4-3 sigur gegn Utrecht í gær og er með sautján stiga forystu. Liðið hefur haft yfirburði allt tímabilið.

PSV hefur þar með orðið Hollandsmeistari þrjú ár í röð. Feyenoord vann titilinn 2023 undir stjórn Arne Slot, núverandi stjóra Liverpool. Árið þar á undan vann Ajax.

PSV vann fimmtán af fyrstu sautján leikjum tímabilsins og kom sér strax í bílstjórasætið í baráttunni um titilinn.


Slapp
banner
banner