Króatíski miðvörðurinn Luka Vuskovic er ekki að íhuga það að fara frá Tottenham þrátt fyrir áhuga stærri liða í Evrópu en þetta sagði hann í viðtali við Frankfurter Allgemeine Zeitung.
Þessi 19 ára varnarmaður var sendur til Hamburger SV á láni út þetta tímabil og þar hefur hann blómstrað.
Vuskovic hefur skorað fimm mörk og er nú einn sá allra eftirsóttasti í Þýskalandi.
Lánssamningur hans rennur út í sumar og hefur verið mikil óvissa um framtíð hans vegna gengi Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð en Vuskovic er skuldbundinn Lundúnafélaginu.
„Maður veit aldrei hvað gerist í fótbolta. Það gæti gerst á næsta ári eða eftir tíu ár þannig ég vil lofa upp í ermina á mér, en eftir þetta tímabil fer ég aftur til Tottenham og er samningsbundinn þar til 2030,“ sagði Vuskovic.
Á síðustu vikum hafa Barcelona, Borussia Dortmund, Bayern München og Paris Saint-Germain verið sögð afar áhugasöm um að fá Vuskovic.
Tottenham er í fallbaráttu og veltur því framtíð hans á því hvort liðinu takist að halda sæti sínu í deildinni eða ekki.

